16.07.11 - 16:41
Mist Rúnarsdóttir
Fríða Þórisdóttir í Álftanes (Staðfest)

Fríða í leik með Þrótti á síðustu leiktíð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Álftanesi hefur borist liðsstyrkur í 1. deild kvenna en Fríða Þórisdóttir er komin til liðsins frá Þrótti Reykjavík.
Fríða hóf meistaraflokksferilinn hjá Álftanesi og lék þar árið 2004 en hún skipti síðan yfir í Þrótt þar sem hún hefur leikið síðan.
Hún á að baki 76 leiki fyrir Þrótt og bar fyrirliðabandið hjá félaginu er það vann sér sæti í Pepsi-deildinni í fyrra.
Hún hefur hinsvegar ekki fengið tækifæri með Þrótturum í ár og hefur því ákveðið að snúa aftur til síns gamla félags.
Álftanesi hefur ekki gengið vel í A-riðli 1. deildar og situr þar á botninum, án stiga eftir fyrri umferðina.