16.07.11 - 09:43
Brynjar Ingi Erluson
Jonathan til Inter (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Inter frá Mílanó hefur fengið brasilíska hægri bakvörðinn Jonathan til liðs við sig frá Santos í heimalandinu.
Jonathan, sem er 25 ára gamall gerir fjögurra ára samning við ítalska félagið en hann mun berjast um stöðuna við landa sinn Maicon sem er einn besti hægri bakvörður heims um þessar mundir.
Hann eyddi ekki miklum tíma hjá Santos þar sem hann kom til liðsins í janúar á þessu ári og var meira og minni meiddur á tíma sínum þar, en áður var hann hjá Cruzeiro í sex tímabil,
Hann hefur verið einn af bestu varnarmönnunum í brasilísku deildinni undanfarin ár og er þetta því mikill liðsstyrkur fyrir Inter en þegar hefur liðið fengið Ricardo Alvarez, Luc Castaignos, Emiliano Viviano og Yuto Nagatomo.

Heimild: Sports Illustrated