Fotbolti.net
16.07.11 - 14:28
Brynjar Ingi Erluson

Guðmundur Magnússon í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Guðmundur Magnússon

Guðmundur Magnússon

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Víkingur á Ólafsvík hefur fengið framherjann Guðmund Magnússon til liðs við sig frá Fram.
Guðmundur, sem er 20 ára gamall hefur leikið með meistaraflokki Fram frá árinu 2007 en hann hefur leikið 52 leiki og skorað 6 mörk fyrir félagið.

Hann mun reynast vænn liðsstyrkur fyrir Víking sem situr í 7. sæti fyrstu deildar með 15 stig eftir tólf umferðir, en hann er kominn með leikheimild með félaginu og ætti því að geta leikið gegn Fjölni næsta föstudag.

Hann á að baki fjóra leiki með U17 ára landsliði Íslands og þá á hann 8 leiki að baki með U19 ára liðinu og eitt mark.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.