16.07.11 - 22:16
Alexander Freyr Tamimi
Chelsea fær efnilegan markvörð frá Belgíu (Staðfest)

Thibout Courtois er genginn til liðs við Chelsea.

Mynd: Getty Images

Manchester United er ekki eina stórliðið á Englandi sem verslar sér ungan markvörð í sumar, því að Chelsea hefur komist að samkomulagi við belgíska úrvalsdeildarfélagið Genk um kaupverð á Thibaut nokkrum Courtois.
Þessi 19 ára efnilegi markvörður mun skrifa undir fimm ára samning við Lundúnarliðið og er talið að þeir hafi borgað tæpar átta milljónir punda fyrir leikmanninn.
Courtois hefur verið líkt við Edwin van der Sar, fyrrum markvörð Manchester United, og hefur fengið góða dóma fyrir frammistöðu sína í Belgíu þrátt fyrir ungan aldur.
Dirk Degraen, yfirmaður hjá Genk, viðurkenndi að félagið hefði fátt annað getað en að samþykkja tilboðið í þennan lykilmann sinn.
,,Við fengum risatilboð sem gerði okkur ekki annað kleift en að leyfa markverðinum okkar að fara,\" sagði Degraen á blaðamannafundi.
,,En ég fékk blendnar tilfinningar varðandi þessi félagaskipti. Genk vildi að Thibaut yrði um kyrrt aðeins lengur.\"
Courtois var samningsbundinn Genk til ársins 2014 en hann hefur nú þegar spilað landsleik fyrir Belgíu. Hann býst þó ekki við því að valsa beint inn í byrjunarlið Chelsea.
,,Chelsea sér mig sem arftaka Petr Cech,\" viðurkenndi hann.
,,Þetta mun ekki gerast á einu til tveimur árum heldur frekar þremur, fjórum eða fimm. Ég get unnið að því að bæta mig í rólegheitunum.\"

Heimild: Sky