16.08.07 - 12:53
Magnús Már Einarsson
Kieron Dyer til West Ham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Ham hefur keypt miðjumanninn Kieron Dyer frá Newcastle, tveimur vikum eftir að Alan Curbishley stjóri Hamranna sagði að ekkert yrði að þessum félagaskiptum.
Félögin komust á dögunum að samkomulagi upp á sex milljónir punda. Newcastle taldi sig síðan hafa samþykkt of lágt kaupverð og vildi fá meira fyrir Dyer. Nú hafa félögin hins vegar samþykkt kaupverð og Dyer hefur gengið til liðs við West Ham.
Dyer sem er 28 ára kom til Newcastle frá Ipswich Town á 6,5 milljónir punda í júlí 1999 en hann hefur átt við mikil meiðsli að stríða á tíma sínum hjá Newcastle.
Dyer hefur einnig á ferli sínum leikið 32 landsleik fyrir Englands hönd.

Heimild: BBC