16.08.10 - 23:07
Magnús Már Einarsson
Brad Jones til Liverpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur keypt markvörðinn Brad Jones frá Middlesbrough á 2,3 milljónir punda.
Jones stóðst læknisskoðun hjá Liverpool í dag og skrifaði síðan undir þriggja ára samning.
Jones hefur verið á óskalista Liverpool í allt sumar en hann fær væntanega það hlutverk að vera varamarkvörður á eftir Pepe Reina.
Þessi 28 ára gamli Ástrali þekkir vel til í enska boltanum en hann gekk í raðir Middlesbrough árið 2001.
Síðan þá hefur hann einnig leikið með Shelbourne, Stockport, Rotherham, Blackpool og Sheffield Wednesday á láni.

Heimild: Sky