Fotbolti.net
16.08.11 - 14:02
Magnús Már Einarsson

Norwich fær Ayala frá Liverpool (Staðfest)

Norwich fær Ayala frá Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Norwich hafa keypt spænska varnarmanninn Daniel Ayala frá Liverpool.

Þessi tvítugi leikmaður hefur verið hjá Liverpool undanfarin fjögur ár en hann hefur einungis leikið fimm leiki með aðalliðinu.

Á síðasta tímabili var Ayala á láni hjá bæði Hull City og Derby County.
Hann getur nú leikið sinn fyrsta leik með Norwich þegar liðið mætir Stoke næstkomandi sunnudag.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.