Fotbolti.net
16.08.11 - 15:47
Magnús Már Einarsson

Emmaneul Eboue til Galatasaray (Staðfest)

Emmaneul Eboue til Galatasaray (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Galatasaray hefur keypt Emmanuel Eboue frá Arsenal en kaupverðið er í kringum þrjár milljónir punda.

Þessi 28 ára gamli leikmaður getur leikið bæði sem bakvörður og kantmaður en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Galatasraray.
Eboue kom til Arsenal frá Beveren í janúar 2005 og lék alls 214 leiki með liðinu.

,,Allir hjá Arsenal þakka Manu fyrir hans framlag og við óskum honum góðs gengis,\" sagði í yfirlýsingu á heimasíðu Arsenal.

Galatasaray er ekki í Evrópukeppni í ár en liðið endaði í áttunda sæti á síðasta tímabili, 36 stigum á eftir toppliði Fenerbahce.

Eboue er afar hress innan sem utan vallar en hér að neðan má sjá myndband þar sem hann leikur meðal annars listir sínar og hlustar á landsliðsþjálfara Norður-Kóreu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.