Fotbolti.net
16.08.23 - 09:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Njarðvík að fá Hollending

Njarðvík að fá Hollending
Canon

Mynd: APEA Akrotiri

Lengjudeildin
Njarðvík í Lengjudeildinni er samkvæmt heimildum Fótbolti.net að fá nokkuð fjölhæfan hollenskan leikmann í sínar raðir.

Sá er 22 ára og verður 23 síðar í þessum mánuði. Hann heitir Nick Kaaijmolen og lék síðast á Kýpur.
Á Transfermarkt er tekið fram að hann sé réttfættur og spili oftast sem djúpur miðjumaður. Hann hafi þó einnig spilað sem miðvörður og á miðri miðju.

Hann lék síðast í B- og C-deild á Kýpur en lék á sínum tíma eitt tímabil í Svíþjóð með Ivan Bubalo sem lék hér á Íslandi með Hetti/Hugin og Fram.

Njarðvík á leik gegn Selfossi í kvöld og næsti leikur þar á eftir er gegn Aftureldingu á sunnudag. Njarðvík er einu stigi frá öruggu sæti þegar sex umferðir eru eftir af deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.