16.09.09 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Liverpool fær framherja frá Southend (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Liverpool hefur samið við 16 ára gamlan leikmann frá Southend sem heitir Michael Ngoo og er hávaxinn framherji.
Hann hafði verið á reynslu hjá félaginu og þótti sanna sig það vel að hann fékk unglingasamning við félagið.
,,Þetta er góður samningur fyrir okkur og gott tækifæri fyrri Mcihael,\" sagði Ricky Duncan sem er yfir unglingastarfinu hjá Southend við vef fe´lagsins.
,,Samningurinn gæti skilað yfir 250 þúsund pundum ef hann nær að sanna sig en upphafleg upphæð er mikið lægri en það.\"
Ngoo spilaði í 67 mínútur með U18 ára liði Liverpool í 2-0 sigri á Barnsley á laugardaginn.
Ekkert bendir til þess að neitt ólöglegt hafi farið fram í kaupunum á honum eins og var með mál Gael Kakuta sem fór til Chelsea og varð til þess að félagið má ekki kaupa leikmenn fyrr en árið 2011.

Heimild: BBC