16.10.06 - 13:04
Hafliði Breiðfjörð
Adolf Sveinsson í Þrótt (Staðfest)

Mynd: Þróttur.is

Mynd: Þróttur.is
Adolf Sveinsson hefur gert 3ja ára samning við Þrótt sem gildir til ársloka 2009. Adolf var markahæsti leikmaður 2. deildar karla í sumar þegar hann lék með Reyni Sandgerði. Að mótinu loknu var hann valinn í lið ársins í 2. deildinni sem þjálfarar og fyrirliðar í 2. deildinni völdu fyrir Fótbolta.net.
Adolf er þrítugur framherji. Hann lék 17 leiki í 2. deildinni í sumar og skoraði í henni 13 mörk en missti úr einn leik vegna leikbanns.
Hann er eldsnöggur sóknarmaður og er mikill markahrókur. Hann hefur áður spilað með Keflavík, Stjörnunni og Val bæði í 1. deild og úrvalsdeild.
Adolf er mikill markaskorari eins og áður sagði en hann er bróðir Harðar Sveinssonar sem er einnig mikill markahrókur sem leikur með Silkeborg í Danmörku. Unnusta hans er einnig mikill markaskorari, hún er Hrefna Jóhannsdóttir leikmaður KR.
Þróttarar réðu á dögunum Gunnar Oddson sem þjálfara en Gunnar kemur einmitt líka frá Reyni Sandgerði.

Heimild: Vefsíða Þróttar