Fotbolti.net
16.10.09 - 09:26
Þórður Már Sigfússon

Stefán Logi Magnússon seldur frá KR til Lilleström (Staðfest)

Stefán Logi Magnússon

Stefán Logi Magnússon

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Markvörðurinn Stefán Logi Magnússon hefur skrifað undir fjögurra ára samning við norska úrvalsdeildarliðið Lilleström en hann hefur verið á láni hjá félaginu síðustu mánuði frá KR. Frá þessu er greint á heimasíðu Lilleström.
Samningurinn sem er til ársins 2013 mun taka gildi þegar lánssamningur Stefáns rennur út í nóvember.

,,Stefán hefur sýnt fram á styrk sinn innan vallar sem utan. Hann er 29 ára en við teljum hann enn hafa svigrúm til þess að bæta sig,“ sagði Torgeir Bjarmann, yfirmaður knattspyrnumála hjá Lilleström, á heimasíðu félagsins að lokinni undirskrift samningsins.

Stefán hefur þótt spila frábærlega með Lilleström í haust og var hann undir smásjá annarra liða, þ.á.m. enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland.

,,Mér hefur verið vel tekið af þjálfurum, stuðningsmönnum og öllum í kringum félagið. Auk þess eru aðstæðurnar frábærar og því er mikilvægt fyrir mig að gefa eitthvað til baka til Lilleström,\" sagði Stefán Logi og bætti við: ,,Félagið tók nokkra áhættu með því að ná í mig til Íslands og er ég því mjög þakklátur fyrir það. Ég er mjög stoltur af því að verða hluti af framtíðaráætlunum Lilleström.\"

Heimild: Heimasíða Lilleström

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.