Fotbolti.net
16.10.09 - 16:37
Magnús Már Einarsson

Jón Vilhelm í Val (Staðfest) - Hafþór Ægir gerir nýjan samning

Jón Vilhelm, Gunnlaugur og Hafþór Ægir eftir að gengið var frá samningum í dag.

Jón Vilhelm, Gunnlaugur og Hafþór Ægir eftir að gengið var frá samningum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Valur hefur fengið miðjumanninn Jón Vilhelm Ákason til liðs við sig frá ÍA en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið nú síðdegis.
Jón Vilhelm er fyrsti leikmaðurinn sem að Valur fær til liðs við sig síðan að Gunnlaugur Jónsson tók við liðinu.

Jón Vilhelm, sem verður 23 ára í næsta mánuði, hefur leikið með ÍA allan sinn feril en hann ákvað á dögunum að róa á önnur mið og í kjölfarið sýndu Valur og Fylkir honum áhuga.

Í sumar settu meiðsli strik í reikninginn hjá Jóni en hann skoraði eitt mark í fimmtán leikjum í 1.deildinni með Skagamönnum.

Þá hefur vinstri kantmaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson gert nýjan tveggja ára samning við Val en hann skrifaði undir nú síðdegis.

Hafþór Ægir er eins og Jón Vilhelm uppalinn á Skaganum en hann hefur verið í herbúðum Vals undanfarin þrjú ár. Í júlí fór Hafþór til Þróttar á láni en hann lék átta leiki með liðinu síðari hluta sumars.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.