Roberto Mancini, þjálfari Ítalíu, var ánægður eftir 5-0 sigurinn á Liechtenstein í undankeppni Evrópumótsins í gær en hann jafnaði þar met Vittorio Pozzo.
Ítalska landsliðið hefur nú unnið níu leiki í röð undir Mancini en hann jafnaði þar met Vittorio Pozzo.
Pozzo vann níu leiki í röð frá 1938 til 1939 en hann gerði ítalska liðið tvisvar að heimsmeisturum.
Mancini var í raun sama um metið en hann væri frekar til að vinna HM í tvígang.
„Það er gaman að jafna metið hans Pozzo en ég væri samt frekar til í að vinna HM tvisvar eins og hann gerði," sagði Mancini.
Athugasemdir