Fotbolti.net
16.11.06 - 17:09
Magnús Már Einarsson

Ibra Jagne í KA (Staðfest)

Ibra Jagne og Slobodan Milisic, þjálfari KA í dag

Ibra Jagne og Slobodan Milisic, þjálfari KA í dag

Canon

Mynd: fot.ka-sport.is

Sóknarmaðurinn Ibra Jagne hefur gert tveggja ára samning við KA úr fyrstu deild en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í dag. Ibra hefur undanfarin þrjú ár leikið með Þórsurum.
Ibra sem er 21 árs er frá Gambíu en hann skoraði níu mörk í sautján leikjum í fyrstu deildinni árið 2004 sem var hans fyrsta tímabil með Þórsurum.

Ibra sem er í A-landsliði Gambíu skoraði í sumar fjögur mörk í átján leikjum í fyrstu deildinni en í fyrra skoraði hann einnig fjögur mörk, þá í sautján leikjum.

Sjá einnig:
Hin Hliðin á Ibra (Júní 2004)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.