16.11.06 - 18:00
Hafliði Breiðfjörð
Helgi Sigurðsson í Val (Staðfest)

Helgi Sigurðsson er kominn í Val.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Helgi Sigurðsson er kominn í Val.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Valsmenn sendu nú undir kvöld frá sér fréttatilkynningu þar sem það var staðfest sem við sögðum frá fyrr í dag að Helgi Sigurðsson er genginn í raðir félagsins frá Fram.
Í tilkynningunni kemur fram að kaupverð sé trúnaðarmál en eins og við höfum fyrr greint frá er það 5,5 milljónir króna samkvæmt áreiðanlegum heimildum okkar og Helgi greiðir sjálfur hluta þeirrar upphæðar.
Helgi Sigurðsson sem er 32 ára gamall gekk í raðir Framara fyrir síðasta tímabil og kom á óvart að hann hygðist leika með liðinu í 1. deildinni þegar lið í Landsbankadeild sýndu honum áhuga. Hann varð markahæsti leikmaður 1. deildar og var valinn besti leikmaður deildarinnar af fyrirliðum og þjálfurum fyrir Fótbolta.net.
Hann lýsti því svo yfir að móti loknu að hann hefði ekki áhuga á að leika með Fram að nýju og eins og fram kom í morgun vildu Framarar fá vel greitt fyrir hann færi hann annað, að öðrum kosti sæti hann í stúkunni í sumar. Það mál er hinsvegar leyst núna eins og staðfest er í fréttatilkynningunni.
Yfirlýsinguna sem Valsmenn sendu í nafni allra þriggja aðilanna má lesa hér að neðan.
Yfirlýsing frá Fram Fótboltafélagi Reykjavíkur hf, Knattpsyrnudeild Vals og Helga Sigurðssyni.
Gengið hefur verið frá félagaskiptum Helga Sigurðssonar frá Fram Fótboltafélagi Reykjavíkur hf til Knattspyrnufélagsins Vals.
Kaupverð er trúnaðarmál, og eru félagaskiptin gerð í sátt og samlyndi milli félaga.
Ótthar Edvardsson
Framkvæmdastjóri
Knattspyrnufélagið Valur
Brynjar Jóhannesson
Framkvæmdastjóri
Fram Fótboltafélag Reykjavíkur hf
Helgi Sigurðsson