16.11.09 - 18:03
Alexander Freyr Tamimi
George Burley rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Skotlands (Staðfest)

George Burley hefur verið sagt upp stöðu sinni hjá Skotlandi.

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Skoska knattspyrnusambandið hefur staðfest að ferli George Burley sem landsliðsþjálfara Skotlands sé hér með lokið eftir stjórn sambandsins fundaði á Hampden Park í kvöld.
Eftir 3-0 tap Skotlands gegn Wales um helgina var ljóst að staða Burley væri meira en lítið óörugg og funduðu forráðamenn sambandsins í allan dag til að ákveða hvort að álit þeirra á stöðu hans sem landsliðsþjálfara hefði breyst.
Upphaflega ákvað stjórnin að sýna honum traust til að leiða Skotland í gegnum undankeppni EM 2012 þrátt fyrir afleitt gengi í undankeppni HM 2010 þar sem Skotland vann einungis þrjá leiki af átta í riðlinum og endaði í þriðja sæti á eftir Hollandi og Noregi.
Þeir hafa þó skipt um skoðun eftir fundinn í dag og eru þeir á því að breytinga sé þörf. Mun Burley yfirgefa stöðu sína undir eins og er leitin að arftaka hafin.
Graeme Souness var ekki lengi að neita því að hann væri mögulegur arftaki Burley en þeir Craig Levein, Walter Smith hjá Rangers, Jim Jefferies og Gary McAllister eru taldir líklegir til að hreppa starfið.

Heimild: Sky