Fotbolti.net
16.11.09 - 19:36
Hafliði Breiðfjörð

Knútur Rúnar Jónsson í Gróttu (Staðfest)

Stjórnmenn Knattspyrnudeildar Gróttu , Birgir Hákonarsson og Hilmar S. Sigurðsson ásamt Knúti við undirritun samningsins.

Stjórnmenn Knattspyrnudeildar Gróttu , Birgir Hákonarsson og Hilmar S. Sigurðsson ásamt Knúti við undirritun samningsins.

Canon

Mynd: Grótta

Knútur hefur skrifað undir 2 ára samning við knattspyrnudeild Gróttu en hann hefur leikið áður með Víkingi R. og Víði undanfarin ár.
Knútur hefur spilað 171 leik í deild og bikar og skorað í þeim 28 mörk, þar af eru 152 leiki fyrir Víði og og 19 leiki fyrir Víking R. á síðasta tímabili í deild og bikar.

Knútur spilaði samtals 28 leiki fyrir Víking R. á síðasta tímabili í deild, deildarbikar og Reykjavíkurmótinu og skoraði 3 mörk.

Knútur spilaði sem fremsti miðjumaður hjá Víði sumarið 2008 og skoraði þá 12 mörk í 2. deildinni og var meðal annars valinn í lið ársins á Fotbolti.net. Knútur var fyrirliði Víðis í þrjú tímabil eða frá 2006-2008 og getur hann leyst flestar stöður á vellinum. Hjá Víking R. spilaði Knútur sem miðvörður.

,,Samningurinn við Knút er mikilvægur liður í áætlun Gróttu að styrkja liðið fyrir næstu leiktíð í 1. deildinni,\" sagði í yfirlýsingu Gróttu í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.