16.12.06 - 15:24
Magnús Már Einarsson
Ingimundur í KR (Staðfest)

Mynd: Rögnvaldur Már Helgason

Mynd: Rögnvaldur Már Helgason
Vinstri kantmaðurinn Ingimundur Níels Óskarsson hefur gert tveggja ára samning við KR en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í dag. Hann kemur til félagsins frá Fjölni þar sem hann er uppalinn en Ingimundur verður samningslaus um áramótin og gengur þá til liðs við KR.
Ingimundur hefur æft með KR að undanförnu eins og við höfum greint frá og skoraði hann meðal annars tvö mörk í síðari hálfleik gegn KV í æfingaleik fyrir um það bil viku.
Ingimundur sem er í úrtaki fyrir U-21 árs landsliðið skoraði eitt mark í sautján leikjum í fyrstu deildinni með Fjölni síðastliðið sumar en hann hefur leikið 30 leiki með liðinu í deildinni og VISA-bikarnum undanfarin þrjú ár.
Hann fékk einnig atvkæði sem efnilegasti leikmaður fyrstu deildarinnar í kosningu sem Fótbolti.net stóð fyrir á meðal fyrirliða og þjálfara í deildinni í haust.