Fotbolti.net
17.01.07 - 11:30
Magnús Már Einarsson

Heiðar Geir lánaður til Hammarby (Staðfest)

Heiðar Geir lánaður til Hammarby (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar hafa staðfest að þeir hafi lánað Heiðar Geir Júlíusson til sænska félagsins Hammarby í eitt ár eins og við greindum frá í gær.
Heiðar Geir sem er sóknar og kantmaður fór til Hammarby á reynslu í ágúst síðastliðnum og skoraði hann meðal annars í leik með varaliði félagsins.

Þessi 19 ára gamli leikmaður hefur leikið með meistaraflokki Fram undanfarin þrjú tímabil en hann lék með KA á Akureyri fram til 13 ára aldurs.

Í fyrstu deildinni síðastliðið sumar skoraði Heiðar eitt mark í átján leikjum þegar Fram sigraði deildina en hann hefur skorað tvö mörk í sautján leikjum í Landsbankadeildinni á ferli sínum með félaginu.

Þá hefur Heiðar leikið fyrir öll yngri landsliðs Íslands en hann lék sinn fyrsta U-21 árs landsleik á síðasta ári og er hann ennþá gjaldgengur í þeim aldursflokki.

Með Hammarby leikur Gunnar Þór Gunnarsson sem gekk til liðs við félagið frá Fram í fyrra. Pétur Hafliði Marteinsson hefur einnig leikið með liðinu undanfarin ár en hann gekk síðastliðið haust til liðs við KR.

Heimild: Heimasíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.