Fotbolti.net
17.01.07 - 18:22
Hafliði Breiðfjörð

Andri Lindberg Karvelsson í Fram (Staðfest)

Andri Karvelsson í leik með ÍA gegn FH sumarið 2004.

Andri Karvelsson í leik með ÍA gegn FH sumarið 2004.

Canon

Mynd: FH.is

Framarar fengu í dag góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í Landsbankadeildinni í sumar þegar Andri Lindberg Karvelsson samdi við félagið. Andri kemur frá ÍA þar sem hann lék til ársins 2004 þegar hann ákvað að taka sér frí frá boltanum vegna náms.
Þjálfari Skagamanna þá var Ólafur Þórðarson sem þjálfar Fram nú og þekkir hann því vel til Andra. Andri lék æfingaleik með Fram gegn Fjölni á mánudagskvöld.

Hann er áttundi leikmaðurinn sem gengur í raðir gengur í raðir Framara siðan þeir unnu sig upp úr 1. deildinni í haust. Reynir Leósson fyrrum félagi hans hjá ÍA kom frá Trelleborg í Svíþjóð, Igor Pesic kom frá ÍA, Theodór Óskarsson frá HK, markvörðurinn Hannes Þ. Halldórsson frá Stjörnunni, Daníel Einarsson úr ÍH, Óðinn Árnason frá Grindavík og annar markvörður, Gunnar Líndal Sigurðsson frá Þór.

Nokkrir eru einnig hættir hjá Frömurum, Gunnar Sigurðsson markvörður lagði skóna á hilluna, Frank Posch fór í Stjörnuna, Helgi Sigurðsson í Val, Heiðar Geir Júlíusson til Hammarby og Víðir Leifsson er hættur hjá félaginu en óvíst hvert hann fer.

Þá eru þeir Arnljótur Davíðsson, Christopher Vorenkamp, Ívar Björnsson og Ingólfur Þórarinsson sem léku með liðinu síðasta sumar samningslausir.

Heimild: Vefsíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.