Fotbolti.net
17.01.08 - 16:48
Eyþór Ernir Oddsson

Matthew Taylor til Bolton (Staðfest)

Taylor að fagna marki ásamt fyrrum félögum sínum hjá Portsmouth.

Taylor að fagna marki ásamt fyrrum félögum sínum hjá Portsmouth.

Canon

Mynd: Getty Images

Bolton Wanderers gengu fyrr í dag frá kaupum á bakverðinum Matthew Taylor frá Portsmouth.
Taylor skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við Bolton eftir að hafa staðist læknisskoðun og samþykkt persónulega hluti.

Gary Megson, þjálfari Bolton er mjög ánægður með að hafa klárað kaupin á Taylor sem eru þriðju kaup Megson í janúar.

,,Matt er gæða leikmaður sem er mjög fjölhæfur vinstra megin. Hann hefur sannað sig sem úrvalsdeildarleikmaður sem kemur með aukin gæði í hópinn," segir Megson.

,,Hann var eftirsóttur af nokkrum liðum og ég er í skýjunum með að hafa fengið hann á Reebok."

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.