Fotbolti.net
17.01.08 - 18:36
Hafliði Breiðfjörð

Figueroa til Wigan (Staðfest)

Steve Bruce er að vinna í að styrkja Wigan liðið.

Steve Bruce er að vinna í að styrkja Wigan liðið.

Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hafa gengið frá samningum um að fá Maynor Figueroa varnarmann landsliðs Honduras á láni til loka tímabilsins en samningurinn er háður því að hann fái atvinnuleyfi.
Figueroa er 24 ára gamall og og var á reynslu hjá Wigan í þrjár vikur. Hann kemur frá Deportivo Olimpia sem er sama félag og Wigan hafði fyrr í mánuðinum keypt Wilson Palacios af.

,,Hann er sterkur, hann er fljótur og hefur svakalegan vinstri fót," sagði Steve Bruce stjóri Wigan í dag. ,,Ég tel að hann hafi það sem þarf til að aðlagast í enska boltanum."

Figueroa á að baki 47 landsleiki með Honduras. Hann sagði: ,,Ég hef alltaf haft metnað til að spila á Englandi og núna fæ ég tækifæri til að sanna mig í deild sem ég tel þá bestu í heiminum. Ég er spenntur fyrir áskoruninni."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.