Fotbolti.net
17.01.09 - 07:13
Magnús Már Einarsson

Guðmundur Steinarsson til FC Vaduz (Staðfest)

Guðmundur Steinarsson til FC Vaduz (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Steinarsson framherji Keflvíkinga er búinn að skrifa undir samning við FC Vaduz frá Liechtenstein en samningurinn gildir til 30.júní.
Þessi 29 ára gamli leikmaður ákvað á dögunum að ganga til liðs við Vaduz og nú er búið að ganga frá öllum lausum endum.

Guðmundur lék frábærlega með Keflavík í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar en hann var valinn besti leikmaður deildarinnar og var einnig markakóngur með sextán mörk.

Hann vann sér einnig sæti í íslenska landsliðinu og lék tvo leiki með liðinu síðastliðið haust.

Vaduz leikur í svissnesku úrvalsdeildinni og er þar í níunda sæti af tíu liðum en keppni í deildinni hefst að nýju eftir vetrarfrí í febrúar.

Sjá einnig:
Guðmundur St: Heldur meiri gæði en maður er vanur heima

Heimild: Heimasíða FC Vaduz

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.