Fotbolti.net
17.01.09 - 11:05
Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Freyr samdi við Apollon FC (Staðfest)

Haraldur Freyr Guðmundsson.

Haraldur Freyr Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Haraldur Freyr Guðmundsson skrifaði í morgun undir eins og hálfs árs samning við Apollon FC frá Kýpur en hann kemur frá norska félaginu Álasund þar sem hann hafði verði undanfarin fjögur ár.
Haraldur sem er 28 ára gamall hafði gengist undir læknisskoðun hjá Apollon í gær og komist að samkomulagi við félagið um samning sem hann skrifaði svo undir í morgun.

Samningurinn er sem fyrr segir til eins og hálfs árs en með möguleika á framlengingu til eins árs til viðbótar.

Haraldur Freyr er uppalinn hjá Keflavík þar sem hann spilaði til ársins 2004 er hann gekk í raðir Álasund.

Apollon er sem stendur í fimmta sæti kýpversku úrvalsdeildarinnar en liðið hefur þrisvar sinnum orðið meistari þar í landi, síðast árið 2003.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.