17.02.09 - 18:02
Alexander Freyr Tamimi
Fyrrum leikmaður Real Madrid til QPR (Staðfest)

Jordi Lopez (hægri) fagnar Evrópumeistaratitlinum með Sevilla

Mynd: Getty Images

Heiðar Helguson og félagar í Queens Park Rangers hafa fengið liðsstyrk í formi spænska miðjumannsins Jordi Lopez en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu.
Lopez hafði verið án liðs síðan Real Mallorca kaus að losa sig við hann í desember og hefur QPR nú ákveðið að fá hann til sín.
Hann hefur skrifað undir samning hjá félaginu til loka tímabilsins og segist knattspyrnustjórinn Paulo Sousa vera hæstánægður með að hafa tryggt sér þjónustu Spánverjans.
„Jordi er mjög, mjög hæfileikaríkur leikmaður og hann mun gefa okkur fleiri möguleika á miðjunni,“ sagði Sousa á opinberri heimasíðu QPR.
„Hann getur spilað fyrir miðju og á kantinum og hann er mjög góður tæknilega.“
„Hann er mjög skapandi miðjumaður og við hlökkum til að bjóða hann velkominn í fjölskylduna okkar.“
Lopez var á sínum tíma á mála hjá Real Madrid áður en hann hélt til Sevilla og þaðan til Real Mallorca.
Þessi 26 ára Spánverji mun nú gera allt hvað hann getur til að hjálpa QPR að berjast fyrir sæti í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili.

Heimild: Sky Sports