Fotbolti.net
17.02.09 - 16:26
Magnús Már Einarsson

Sigmundur Kristjánsson til Brabrand (Staðfest)

Sigmundur Kristjánsson til Brabrand (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson

Sigmundur Kristjánsson fyrirliði Þróttara hefur gengið til liðs við danska 2.deildarliðið Brabrand.
Á dögunum var greint frá því að Sigmundur væri hættur hjá Þrótti þar sem hann væri á leið til náms í Danmörku.

Á dögunum æfði Sigmundur með Brabrand þar sem hann heillaði forráðamenn félagsins. Í kjölfarið var gengið frá samningum og nú hefur Sigmundur fengið félagaskipti til Danmerkur.

Sigmundur gekk til liðs við sitt gamla uppeldisfélag, Þrótt frá KR fyrir síðustu leiktíð og fékk strax fyrirliðabandið.

Hann missti af byrjun tímabilsins vegna meiðsla en spilaði á endanum 14 leiki og skoraði í þeim tvö mörk.

Heimild: Heimasíða Braband

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.