17.02.12 - 09:24
Hafliði Breiðfjörð
Matthías Vilhjálmsson til Start - framlengir við FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Matthías Vilhjálmsson fyrirliði FH er genginn til liðs við norska félagið Start og eins og kom fram hér á Fótbolta.net í gær er hann lánaður til félagsins út árið með ákvæði um kaupsamning í kjölfar þess.
Matthías flaug utan í gær en áður en hann gerði það skrifaði hann undir eins árs framlengingu á samningi sínum við FH. Hann er því samningsbundinn FH til loka árs 2013 að því er kemur fram á FHingar.net.
Hann hefur nú staðist læknisskoðun hjá norska félaginu og skrifað undir samninga við félagið.
Fleiri lið í Noregi, til dæmis tvö úr efstu deild þar í landi, höfðu sýnt Matthíasi áhuga en hann valdi Start.
Hann æfði til að mynda með FK Haugesund í haust en var sparkaður niður eftir hálftíma á fyrstu æfingu og varð að snúa heim.
Síðasta vetur var hann á láni hjá enska liðinu Colchester.
Matthías hefur verið í stóru hlutverki hjá FH síðan 2006 og tók síðan við fyrirliðabandinu hjá liðinu. Hann á átta A-landsleiki að baki fyrir Ísland og fjölda leikja fyrir yngri landslið.
FH-ingar hafa misst nokkra leikmenn frá síðustu leiktíð. Auk Matthíasar eru farnir þeir Guðmundur Sævarsson í Hauka, Gunnar Kristjánsson í KV, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson sem fer annað, Tommy Nielsen sem er hættur, og varamarkvörðurinn Gunnar Sigurðsson í Fjölni. Gunnar Már Guðmundsson sem var á láni hjá Þór í fyrra er farinn í ÍBV og Sverrir Garðarsson sem var ekkert með vegna meiðsla verður ekki með þeim í sumar.
Félagið hefur fengið fjóra leikmenn, þá Albert Brynjar Ingason frá Fylki, Guðjón Árna Antoníusson frá Keflavík, Guðmann Þórisson frá Nybergsund og markvörðinn Róbert Örn Óskarsson sem lék með ÍR í fyrra á láni frá Víkingum.

Heimild: FHingar.net