17.02.12 - 11:13
Elvar Geir Magnússon
Guus Hiddink tekur við Anzhi Makhackala (Staðfest)

Hiddink er fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea.

Mynd: Getty Images

Anzhi Makhachkala í Rússlandi hefur fengið Hollendinginn Guus Hiddink við stjórnvölinn. Hiddink hefur samþykkt samningstilboð frá Anzhi sem færir honum ansi mikið í aðra höndina.
Samningurinn mun vera til 18 mánaða en Hiddink er 65 ára og er fyrrum landsliðsþjálfari Rússa.
Hann mun koma til móts við liðið í Tyrklandi þar sem það er í æfingabúðum áður en seinni hluti tímabilsins fer af stað.
Hiddink hefur verið atvinnulaus síðan hann hætti með landslið Tyrklands á síðasta ári. Hans nafn var nefnt yfir þá sem koma til greina sem næsti þjálfari Englands.
Þegar 12 umferðir eru eftir af rússnesku deildinni situr Anzhi í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar þar í landi, þrettán stigum á eftir toppliði Zenit og sex stigum frá Meistaradeildarsæti.