17.02.12 - 18:03
Hafliði Breiðfjörð
Sverrir Garðarsson í ÍBV (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Varnarmaðurinn Sverrir Garðarsson er genginn til liðs við ÍBV og hefur þegar fengið leikheimild með sínu nýja félagi.
Eyjamenn hafa ekki gefið út um samning við leikmanninn en þó fengið félagaskiptin staðfest hjá KSÍ. Hann hafði æft með liðinu í vikunni.
Sverrir er með leikheimild og má spila með ÍBV þegar liðið mætir ÍR í Lengjubikar karla á sunnudaginn klukkan 14:00 í Egilshöll.
Sverrir hafði fyrr í vikunni komist að samkomulagi við FH um starfslok en áður hafði hann deilt við félagið um hvernig þeim málum skyldi háttað.
Það leystist svo og FH-ingar tilkynntu um starfslok hans á þriðjudaginn.
Í maí 2010 var tilkynnt að Sverrir væri hættur knattspyrnuiðkun vegna höfuðmeiðsla. Um sumarið fór hann síðan að æfa handbolta með FH.
Hann tók knattspyrnuskóna aftur upp fyrir sumarið 2011 en hann fékk þá sérútbúinn hjálm.
Hann spilaði þó ekkert í fyrrasumar þar sem hann meiddist í æfingaferð FH-inga í Portúgal og þurfti að fara í aðgerð á liðþófa.
Sverrir er uppalinn hjá FH en hefur einnig leikið með Sundsvall í Svíþjóð.