Á hverjum degi þá skyggnumst við inn í slúðurheima í boði Powerade. Það er BBC sem tekur saman það helsta sem ensku götublöðin og fleiri miðlar heimsins eru að fjalla um.
Manchester United íhugar að reyna að fá argentínska miðjumanninn Alexis Mac Allister (27) frá Liverpool en mögulegt er að hann yfirgefi Anfield í sumar. (Star)
Manchester City vill frekar senda enska markvörðinn James Trafford (23) á lán en að selja hann í sumar. Leeds, Aston Villa og Newcastle hafa öll áhuga. (TeamTalk)
Senegalski sóknarmaðurinn Nicolas Jackson (24) hefur ekki fengið mikinn spiltíma hjá Bayern München og búist er við því að hann snúi aftur til Chelsea í sumar. Þýskalandsmeistararnir eru ólíklegir til að nýta ákvæði í lánssamningi hans um kaup. (Times)
Arsenal hefur fengið þær upplýsingar að spænski vængmaðurinn Nico Williams (23) sé tilbúinn að skoða það að yfirgefa Athletic Bilbao í sumar. (TeamTalk)
Draumur Brighton er að fá þýska kantmanninn Said el Mala (19) frá Köln í sumar og hefur lagt fram tilboð. (Sky Þýskalandi)
Það er forgangsmál hjá Napoli að halda Scott McTominay (29) og félagið ætlar að bjóða honum launahækkun. Félög í ensku úrvalsdeildinni hafa áhuga á að fá hann. (Fichajes)
Manchester United segist ekki hafa sett sig í samband við umboðsmann Jurgen Klopp. (Sky Sports)
Real Madrid er í kjörstöðu til að tryggja sér þýska varnarmanninn Nico Schlotterbeck (26) frá Borussia Dortmund í sumar. Barcelona hefur einnig áhuga. (Fichajes)
Manchester United mun halda áfram að fylgjast með Hayden Hackney (23) hjá Middlesbrough en félagið ætlar að styrkja miðsvæði sitt í sumar. Leeds, Tottenham og Everton hafa einnig áhuga á Englendingnum. (TeamTalk)
Galatasaray vill fá tyrkneska miðjumanninn Hakan Calhanoglu (32) frá Inter í sumar. (La Gazzetta dello Sport)
Hansi Flick, stjóri Barcelona, vill styrkja varnarlínu sína með norska bakverðinum Julian Ryerson (28) hjá Borussia Dortmund. (Fichajes)
Athugasemdir



