Fotbolti.net
17.03.06 - 10:02
Magnús Már Einarsson

Landsliðsfyrirliði Úganda til ÍBV (Staðfest)

Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍBV.

Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Varnarmaðurinn Andrew Mwesingwa hefur gert þriggja ára samning við ÍBV en þessi 22 ára gamli leikmaður er fyrirliði landsliðs Úganda frá Afríku. Hann hefur leikið með SC Villa í heimalandinu og verið þar fyrirliði en liðið hefur fjórtán sinnum orðið meistari og sjö sinnum bikarmeistari í deildinni í Úganda frá árinu 1982.
Gísli Hjartarson stjórnarmaður ÍBV segir við Morgunblaðið að Mwesingwa sé spenntur fyrir því að komast til Evrópu og sér ÍBV sem góðan stökkpall á þeirri leið sinni en leikmaðurinn getur einnig spilað sem varnarsinnaður miðjumaður.

Þá komu tveir Bandaríkjamenn til Eyjamanna á reynslu í gær. Báðir eru þeir 22 ára, annar þeirra heitir Amir Lowery og er varnarsinnaður miðjumaður sem lék síðast með Colorado Rapids í bandarísku MLS-deildinni en hinn er hávaxinn sóknarmaður að nafni Anthony Peters sem lék á síðasta ári með New Orleans Shell Shockers í 2. deild í Bandaríkjunum. Þá er Jonah Long einnig væntanlegur á reynslu til Eyjamanna og kemur hann í næstu viku.

Heimild: Morgunblaðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.