Fotbolti.net
17.03.07 - 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Liverpool semur við sautján ára strák (Staðfest)

Benitez er að fjárfesta í ungum og efnilegum leikmönnum

Benitez er að fjárfesta í ungum og efnilegum leikmönnum

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur gengið frá kaupum á sautján ára gömlum miðjumanni frá skoska félaginu Ross County að nafni Gary MacKay.
Samkvæmt heimildum frá Englandi þurfa Liverpool að borga yfir milljón punda fyrir leikmanninn sem spilar þó aðeins með U-19 ára liði Ross County.

,,Gary fer til hinnar mikils metnu unglingaakademíu Liverpool í lok enska tímabilsins. Okkur hlakkar til að sjá hann spjara sig í Úrvalsdeildinni á næstu árum,” sagði í yfirlýsingu frá skoska félaginu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.