17.03.07 - 18:08
Magnús Már Einarsson
Dennis Bo Mortensen í Val (Staðfest)

Úr leik Vals og FH á síðustu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti G. Hjartarson

Valur hefur staðfest að danski framherjinn Dennis Bo Mortensen hafi gert tveggja ára samningi við félagið en við greindum frá því í gær að hann væri á leið til félagsins.
,,Ég er spenntur að koma til Vals, það er mikill kraftur og uppbygging í gangi hjá félaginu,” sagði hinn 26 ára gamli Dennis í fréttatilkynningu sem Valur sendi frá sér í dag.
Dennis er uppalinn hjá PSV Eindhoven í Hollandi en hann lék síðast með Köge í dönsku fyrstu deildinni þar sem hann gerði sjö mörk í ellefu leikjum í vetur.
Hann var í láni hjá Köge frá FC Nordsjælland en hann var markahæsti leikmaðurinn í dönsku 1. deildinni 2004 með 20 mörk í 26 leikjum.
Dennis kemur til með að styrkja framlínu Valsliðsins sem hefur misst Garðar Jóhannsson og Garðar Bergmann Gunnlaugsson frá því síðastliðið sumar en liðið fékk á haustdögum annan sterkan framherja, Helga Sigurðsson.
Dennis mun skrifa undir tveggja ára samning við Val þegar hann kemur til Íslands í lok þessa mánaðar.