FH hefur áhuga á að sækja Viktor Nóa Viðarsson í sínar raðir frá Gent í Belgíu. Viktor, sem er átján ára gamall, er sonur Arnars Þórs Viðarssonar fyrrum landsliðsþjálfara.
Greint var frá tíðindunum í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag. Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH og frændi Viktors, staðfesti áhugann í samtali við Fótbolta.net. Davíð býst við að línur skýrist fyrir vikulok.
Greint var frá tíðindunum í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag. Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH og frændi Viktors, staðfesti áhugann í samtali við Fótbolta.net. Davíð býst við að línur skýrist fyrir vikulok.
Viktor Nói hefur búið alla ævi í Belgíu og hefur hann spilað fyrir U17 landslið Belgíu og var með fyrirliðaböndin í yngri landsliðum Belga.
Fyrir rúmu ári síðan valdi hann að spila fyrir Ísland og hefur hann leikið níu leiki fyrir U19 landslið Íslands. Hann er varnarsinnaður miðjumaður og þykir mikið efni.
FH
Komnir:
Jökull Andrésson frá Aftureldingu
Kári Kristjánsson frá Þrótti R.
Adolf Daði Birgisson frá Stjörnunni
Sverrir Páll Hjaltested frá ÍBV
Tobias Carlsson frá Svíþjóð
Aron Jónsson frá Aftureldingu
Kristján Snær Frostason frá HK
Arnór Borg Guðjohnsen frá Vestra (var á láni)
Gils Gíslason frá ÍR (var á láni)
Axel Marcel Czernik frá Breiðabliki
Farnir:
Sigurður Bjartur Hallsson til Spánar
Björn Daníel Sverrisson hættur og tekinn við Sindra
Böðvar Böðvarsson í ÍA
Ahmad Faqa til AIK (var á láni)
Bjarni Guðjón Brynjólfsson í Þór á láni
Bragi Karl Bjarkason í Njarðvík
Einar Karl Ingvarsson í Hauka
Mathias Rosenörn
Dagur Örn Fjeldsted í Breiðablik (var á láni)
Samningslausir:
Dagur Traustason
Athugasemdir



