17.04.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Hreinn Bergs í KV (Staðfest)

Mynd: KV

Mynd: KV
Knattspyrnufélag Vesturbæjar hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin í 2. deild en Hreinn Bergs er kominn til liðsins að láni frá KR.
Hreinn er 19 ára sóknarmaður sem áður hefur leikið með HK og Ými.
Í vetur hefur Hreinn æft með KR en hann samdi við félagið í janúar síðastliðnum.
Hreinn gerði sér lítið fyrir og skoraði í sínum fyrsta leik með KV í gærkvöldi.
Hreinn skoraði þá eitt fjögurra marka KV í sigri á hans gömlu félögum í Ými í Lengjubikarnum.