Fotbolti.net
17.04.26 - 15:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bjössi Hreiðars pirraður á leiktímanum

Bjössi við hlið Óla Jó en þeir náðu frábærum árangri saman sem þjálfarar Vals.

Bjössi við hlið Óla Jó en þeir náðu frábærum árangri saman sem þjálfarar Vals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikur Vals og ÍBV hefst klukkan 16:30 í dag, leiknum var flýtt þar sem einungis er siglt til Vestmannaeyja frá Þorlákshöfn og ef hann hefði farið seinna af stað hefðu Eyjamenn ekki komist til síns heima í kvöld.

Upphaflega átti leikurinn að hefjast klukkan 18:00.
Siglingaáætlun til og frá Eyjum hefur mikil áhrif á Bestu deildina
TENGT EFNI

Siglingaáætlun til og frá Eyjum hefur mikil áhrif á Bestu deildina

Sigurbjörn Hreiðarsson, Bjössi Hreiðars, er goðsögn hjá Val og ræddi hann um leiktímann í Þungavigtinni í dag.

„Ég er mjög pirraður yfir því að það sé búið að færa Val - Vestmannaeyjar framar. Ég næ ekki þessum leik, ég verð í vinnu, maður þarf að vinna sína vinnu og ég næ ekki fyrri hálfleiknum og ég er pirraður yfir því," sagði Bjössi í þættinum.

„Það á bara að vera með þetta á morgun," sagði Bjössi. Heyrst hefur að það sé árshátíð á Hlíðarenda á morgun og því sé t.d. búið að færa oddaleik Vals og Keflavíkur í Bónus deildinni fram á sunnudag.

„Í hvaða öðru landi eða deild er einhver að spá í það hvenær liðið kemst heim til sín eftir leik? Það er aldrei. Leikjum er ekkert flýtt í Meistaradeildinni svo menn komast fyrr heim," sagði Mikael Nikulásson í þættinum.

„Við erum að tala um 2. umferð deildarinnar, tala um að mynda einhverja stemningu, Valur er að spila annan heimaleikinn sinn. Hvað haldiði að það verði margir á vellinum? Menn eru að reyna mynda einhverja stemningu fyrir leik," sagði Bjössi.

2. umferð Bestu deildarinnar
16:30 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:30 KR-Þór (Meistaravellir)
17:30 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
18:00 Fram-Keflavík (Lambhagavöllurinn)
18:00 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
20:00 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)

Heimild: Þungavigtin

Bjössi Hreiðars pirraður á leiktímanum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.