17.05.05 - 16:49
Hafliði Breiðfjörð
Þórarinn Kristjánsson til Þróttar (Staðfest)

Þórarinn skrifar undir í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Þórarinn skrifar undir í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Þórarinn Kristjánsson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við efstu deildarlið Þróttar en þetta verður tilkynnt á blaðamannafundi hjá félaginu klukkan 17:00 í dag.
Þórarinn lék með Keflavík á síðustu leiktíð og var þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar með 10 mörk í 18 leikjum.
Að tímabilinu loknu gekk hann í raðir Aberdeen í Skotlandi þar sem hann var til loka tímabilsins en skoska félagið ákvað að endurnýja ekki samning sinn við hann.
Okkar menn verða á staðnum og koma með myndir og viðtöl í kvöld.