Fotbolti.net
17.05.07 - 13:49
Margrét Lára Viðarsdóttir

Sara Sigurlásdóttir í Fylki (Staðfest)

Sara Sigurlásdóttir í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Kvennaboltinn
Eyjastúlkan Sara Sigurlásdóttir hefur gengið til liðs við Fylki. Sara er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum en skipti yfir í Val fyrir tímabilið 2006 þegar meistaraflokkur ÍBV var lagður niður. Þessi 21 árs gamli miðjumaður á að baki 40 leiki í efstu deild og er hún því mikill liðstyrkur fyrir Árbæjarliðið.
Sara sagði í samtali við Fótbolta.net í dag að henni litist mjög vel á Fylkissliðið og að spennandi tímar væru framundan ,,mér lýst mjög vel á liðið. Þetta er skemmtilegur hópur og það verður gaman að taka þátt í þeirri miklu uppbyggingu og þeim áhuga til að gera betur sem er hjá félaginu"

Eins og áður hefur getið til um spilaði Sara síðasta sumar með Val og varð bæði Íslands og bikarmeistari með félaginu. En var það ekki erfið ákvörðun að fara frá félaginu ,,Jú þetta var frekar erfið ákvörðun. Valsliðið er mjög sterkur hópur og frábærar stelpur, en ég lít á þetta sem tækifæri fyrir mig að fá mikla reynslu þar sem ég spila mun veigameira hlutverk í Fylkisliðinu"

ÍBV hefur ekki verið með starfræktan meistaraflokk í ár og því skipti Sara í Val á sínum tíma. En sér Sara sig fyrir sér spila aftur með félaginu ef ÍBV stofnar meistaraflokk. ,,Ef liðið mun spila aftur í efstu deild þá gæti ég vel hugsað mér það enda frábært að eyða sumrinu í eyjum og spila fótbolta"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.