17.05.11 - 17:09
Magnús Már Einarsson
Solbakken tekur við Köln (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stale Solbakken, þjálfari FC Kaupmannahöfn, hefur verið ráðinn þjálfari hjá Köln í Þýskalandi.
Hinn norski Solbakken hefur stýrt Kaupmannahöfn fimm sinnum til sigurs í dönsku deildinni en liðið er þegar orðið meistari á þessu tímabili.

Solbakken hafði samþykkt að taka við norska landsliðinu á næsta ári en Köln borgaði óuppgefna upphæð til að leysa hann frá þeim samningi.
Solbakken tekur formlega við Köln þann 1. júlí en þá munu Sölvi Geir Ottesen og félagar í Kaupmannahöfn einnig fá nýjan þjálfara þegar Roland Nilson tekur við.

Heimild: AP