17.06.11 - 15:18
Magnús Már Einarsson
Jeremy Toulalan og Joris Mathijsen til Malaga (Staðfest)

Jeremy Toulalan.

Mynd: Getty Images

Jeremy Toulalan.

Mynd: Getty Images
Spænska félagið Malaga hefur keypt hollenska varnarmanninn Joris Mathijsen og franska miðjumanninn Jeremy Toulalan.
Toulalan kemur frá Lyon en hann gerði fjögurra ára samning við Malaga.
Mathjisen kemur frá Hamburg í Þýskalandi en hann skrifaði undir tveggja ára samning.
Meðlimur í konungsfjölskyldunni í Katar keypti Malaga í vor og eftir að hafa verið nálægt falli á síðasta tímabili er stefnan sett á Evrópusæti á næsta tímabili.
Toulalan og Mathijsen eru hluti af þeim áætlunum en Malaga hefur einnig samið við Ruud van Nistelrooy og spænska varnarmanninn Nacho Monreal.

Heimild: Reuters