Fotbolti.net
17.06.11 - 20:11
Magnús Már Einarsson

Demba Ba til Newcastle (Staðfest)

Demba Ba til Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle United hefur krækt í senegalska framherjann Demba Ba frá West Ham.

Þessi 26 ára gamli leikmaður skrifaði undir þriggja ára samning við Newcastle í dag.
Ba kom til West Ham frá Hoffenheim í janúar síðastliðnum og skoraði sjö mörk í þrettán leikjum.

,,Demba stóð sig vel hjá West Ham á síðasta tímabili og það er frábært að semja við hann,\" sagði Alan Pardew stjóri Newcastle.

,,Hann hefur hraða, frábæra tækni auk þess sem hann er góður í loftinu.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.