Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
banner
   þri 17. júní 2025 11:09
Brynjar Ingi Erluson
Ítalskur landsliðsmaður til Brighton (Staðfest)
Diego Coppola (t.h.) er genginn í raðir Brighton
Diego Coppola (t.h.) er genginn í raðir Brighton
Mynd: Brighton
Brighton hefur fest kaup á ítalska varnarmanninum Diego Coppola frá Hellas Verona.

Coppola er 21 árs gamall miðvörður sem hefur spilað stórt hlutverk með Hellas Verona síðustu ár.

Brighton greiðir 9 milljónir punda fyrir Coppola sem skrifaði undir fimm ára samning í dag.

Leikmaðurinn er staddur með U21 árs landsliði Ítalíu á Evrópumótinu í Slóvakíu þessa stundina, en mun hefja æfingar með liðinu í næsta mánuði.

„Diego er spennandi viðbót við liðið. Hann er hávaxinn, sterkur og stöðugur og mun færa okkur líkamlega nærveru. Hann hefur tekið miklar framfarir í Seríu A og verðskuldaði sæti sitt í A-landsliði Ítalíu. Við erum fullir tilhlökkunar í að hjálpa honum að þróa leik sinn enn meira,“ sagði Fabian Hürzeler, stjóri Brighton.

Coppola spilaði fyrstu A-landsleiki sína fyrr í þessum mánuði gegn Noregi og Moldóvu.


Athugasemdir
banner
banner
banner