Fotbolti.net
17.07.07 - 11:35
Magnús Már Einarsson

Etuhu til Sunderland (Staðfest)

Etuhu til Sunderland (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Sunderland hafa keypt Dickson Etuhu frá Norwich á 1,5 milljónir punda en þessi 25 ára gamli leikmaður hafnaði um síðustu helgi nýju samningstilboði frá Norwich.
Etuhu sem var á sínum tíma hjá Manchester City var í byrjunarliði Norwich í 42 leikjum á síðustu leiktíð en hann kom til félagsins frá Preston í janúar 2006.

,,Hann er leikmaður sem ég dáist af. Hann mun gefa okkur eitthvað öðruvísi en það sem við höfum fyrir," sagði Roy Keane stjóri Sunderland en hannn hefur hefur haft í nógu að snúast á leikmannamarkaðnum í sumar.

Í gær keypti hann Kieran Richardson frá Manchester United en áður hafði Keane fengið Greg Halford, Russell Anderson og Michael Chopra til Sunderland sem hefur eytt sautján milljónum punda í leikmenn í sumar.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.