Fotbolti.net
17.07.07 - 13:19
Magnús Már Einarsson

Real Madrid lánar Pablo Garcia til Murcia (Staðfest)

Real Madrid lánar Pablo Garcia til Murcia (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Real Murcia í spænsku deildinni hafa fengið miðjumanninn Pablo Garcia að láni frá Real Madrid út næstu leiktíð.
Þessi þrítugi Úrúgvæi sem var að keppa á Copa America á dögunum var í láni hjá Celta Vigo á síðustu leiktíð.

Garcia kom til Real Madrid frá Osasuna í júlí 2005 á 4,5 milljónir evra og spilaði hann 22 deildarleiki áður en hann var lánaður til Celta síðastliðið sumar.

Nýliðar Real Murcia hafa verið að styrkja sig að undanförnu og á dögunum fengu þeir annan Úrúgvæa, Mario Regueiro að láni frá Valencia.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.