Fotbolti.net
17.07.07 - 15:42
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Giuly til Roma (Staðfest)

Giuly til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Roma hefur keypt franska kantmanninn Ludovic Giuly frá Barcelona á 3,2 milljónir evra og hefur þessi 31 árs gamli leikmaður gert þriggja ára samning við ítalska félagið.
Giuly sem hóf ferilinn sinn hjá Lyon lék með Monaco frá 1998-2004 þegar hann fór til Barcelona.

Á Spáni skoraði hann 20 mörk í 85 deildarleikjum með Barcelona, hann vann spænsku deildina tvívegis og Meistaradeildina einu sinni með félaginu.

Giuly sem á 17 landsleiki að baki með Frökkum mun hjá Roma hitta fyrir landa sinn Philippe Mexes og fyrrum liðsfélaga sinna hjá Monaco, Christian Panucci.

Heimild: Heimasíða UEFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.