Fotbolti.net
17.07.09 - 09:45
Hafliði Breiðfjörð

Man Utd kaupir óvænt framherjann Diouf frá Molde (Staðfest)

Sir Alex Ferguson.

Sir Alex Ferguson.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United staðfesti í morgun að félagið hafi keypt framherjann Mame Biram Diouf frá norska félaginu Molde. Diouf sem er 21 árs gamall er lánaður strax aftur til Molde en kemur til Man Utd í janúar.
Félagaskiptin komu óvænt enda hafði Sir Alex Ferguson stjóri Man Utd sagt í síðustu viku að fleiri elikmenn yrðu ekki keyptir til félagsins eftir að þeir Michael Owen, Antonio Valencia og Gabriel Obertan komu.

Ferguson segir hinsvegar að eftir að önnur félög fóru á eftir þessum senegalska framherja hafi ensku meistararnir þurft að bregðast hratt við.

,,Við keyptum ungan leikmann í gær frá Noregi sem við höfum fylgst með í tvö ár,\" sagði hann á vef félagsins. ,,Við ætluðum ekki að kaupa neinn annan eftir síðustu viku þar sem við teljum okkur hafa fullan hóp, en málið komst á það stig að önnur félög voru farin að bjóða.\"

,,Svo við urðum að ákveða hvort við myndum bregðast við eða ekki. Við ákváðum að bregðast við og hann verður síðasti leikmaðurinn sem við kaupum.\"


Diouf skoraði 30 mörk í 62 leikjum síðan hann kom til Molde árið 2007 sem er sama félag og Man Utd keypti Ole Gunnar Solskjær frá. Hann skroaði þrennu á fyrstu níu mínútunum í leik gegn Íslendingaliði Brann á dögunum og bætti svo við öðru í 5-2 sigri.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.