Fotbolti.net
17.07.09 - 14:41
Magnús Már Einarsson

Axel Ingi og Vilhjálmur Þór í Aftureldingu (Staðfest)

Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson.

Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding hefur fengið Axel Inga Magnússon og Vilhjálm Þór Vilhjálmsson til liðs við sig.
Axel Ingi er uppalinn Fylkismaður en hann hefur leikið með Víði Garði í annarri deildinni í sumar.

Axel hefur skorað tvö mörk í átta leikjum í annarri deildinni í sumar en hann getur leikið á miðjunni og framarlega á vellinum.

Vilhjálmur er miðjumaður sem er uppalinn hjá Fram en hann á einn deildarleik að baki með liðinu.

Í fyrravetur æfði Vilhjálmur með Aftureldingu en lék ekki með liðinu um sumarið.

Báðir leikmennirnir ættu að geta leikið með Aftureldingu gegn Fjarðabyggð í fyrstu deildinni á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.