Fotbolti.net
17.07.09 - 16:03
Magnús Már Einarsson

Manucho til Real Valladolid (Staðfest)

Manucho til Real Valladolid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur leyft angólska framherjanum Manucho að ganga í raðir Real Valladolid en hann hefur gert fimm ára samning við spænska félagið.
Manucho samdi við United fyrir einu og hálfu ári síðan en hann lék einungis einn leik með liðinu í ensku úrvalsdeildinni.

Þessi 26 ára gamli leikmaður fór til Panathinaikos á láni skömmu eftir að hafa samið við United.

Síðari hluta síðustu leiktíðar var Manucho síðan í láni hjá liði Hull City.

Í kjölfarið var búist við því að hann myndi reyna að vinna sér sæti í liði Manchester United en nú er ljóst að hann er farinn frá félaginu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.