Fotbolti.net
17.07.09 - 15:07
Magnús Már Einarsson

Arnar Bergmann Gunnlaugsson í Val (Staðfest)

Arnar Bergmann Gunnlaugsson í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Arnar Bergmann Gunnlaugsson hefur gengið í raðir Vals en þetta kom fram í fréttatilkynningu frá félaginu nú síðdegis.
Arnar og Bjarki bróðir hans tóku við þjálfun ÍA á miðju tímabili í fyrra eftir að hafa leikið með FH á fyrri hluta tímabilsins.

Hjá ÍA fengu þeir það hlutverk að vera spilandi þjálfarar og bjarga sæti liðsins í deildinni eftir dapra frammistöðu þá um sumarið. Það tókst ekki og liðið lék í 1. deildinni í sumar.

Þeir héldu svo áfram að vera spilandi þjálfarar liðsins í sumar en gengi liðsins í 1. deildinni í sumar hefur verðir mjög dapurt og á endanum komust þeir að samkomulagi við ÍA um að leiðir skildu skilja eins og tilkynnt var um í fyrrakvöld.

Líklegt er að Arnar leiki sinn fyrsta leik með Val gegn Fylki í Pepsi-deildinni næstkomandi mánudagskvöld.

Fréttatilkynning frá Val
Knattspyrnufélagið Valur og Arnar Bergmann Gunnlaugsson hafa gert með sér samkomulag um að Arnar leiki með Valsmönnum út þetta tímabil.

Miklar vonir eru bundnar við Arnar sem er einn reynslumesti og ástsælasti leikmaður íslenskrar knattspyrnu síðustu árin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.